Shows / Besta sætið

Besta sætið
Besta sætið er hlaðvarp íþróttadeildar Sýnar. Þar er fjallað um allt sem skiptir máli í íþróttaheiminum.
Episodes
Besta sætið13. okt - Meistaradeildin, landsleikur, formúla og ballet... já, ballet
Það er svo sannarlega víða komið við í Besta sætinu í dag. Stelpurnar okkar spila landsleik á eftir og eiga að klára það verkefni. Man. Utd fær risaverkefni í…
Besta sætið12. okt - Áhugalausir Valsmenn og endalaust þrot hjá Man. Utd
Enski boltinn, Besta deildin, NFL og körfubolti í þætti dagsins.
Besta sætið9. okt - Agabrot landsliðsmanna og boltinn rúllar á ný
Agabrot leikmanna karlalandsliðsins hafa verið í fréttum í dag en lítið kemur um málið frá KSÍ. Landsliðsþjálfarinn ætlar ekki að tjá sig strax. Enski boltinn…
Besta sætið8. okt - Upphitun fyrir Bónus karla
Bónus-deild karla hefst í kvöld. Besta sætið vill mæk á dómarana og enginn virðist vita hvar DeAndre Kane er.
Besta sætið7. okt - Uppgjör á slökum leik gegn Eistum
Ísland gerði markalaust jafntefli gegn Eistlandi ytra í gær. Leikurinn var arfaslakur af hálfu íslenska liðsins. Lionel Messi kvaddi svo argentínska landsliðið…
Besta sætið6. okt - Krefjumst sigurs í Tallin
Ísland sækir Eistland heim þar sem toppsætið er undir. Sigur er líka mikilvægur upp á að komast á næsta stórmót. Sú staða er vel skoðuð og svo er stutt karaoke…
Besta sætið5. okt - Gylfi spilar rifbeinsbrotinn og Heimir stóð í ströngu
Fókus dagsins er á landsleik Eistlands og Íslands sem fer fram á morgun. Það er krafa á sigur frá Besta sætinu. Heimir Hallgrímsson er farinn í langþráð frí…
Besta sætið2. okt - Arnar stígur varlega til jarðar og spáin í Bónus
Landsleikur gegn Búlgaríu á morgun og Arnar Gunnlaugsson er varkár í yfirlýsingum. Álftnesingum er spáð deildarmeistaratitlinum í körfu karla og fallið klárast…
Besta sætið1. okt - Ronaldo og frekjukastið stóra
Cristiano Ronaldo, Man. City og Heimir Hallgrímsson á matseðli dagsins.
Besta sætið30. sept - Man City og Lúxus í Lúx
Það var nóg að fara yfir í Besta sætinu þennan miðvikudag. Landsliðið okkar vann góðan sigur á Lúxemborg og svaraði rækilega fyrir slæman leik gegn Eistum um…
Besta sætið29. sept - Pressa á Arnari
Pressa er á Arnari Gunnlaugssyni, landsliðsþjálfara, sem og karlalandsliðinu í fótbolta fyrir útileik við Lúxemborg í dag. U21 árs landsliðið mætir þá Sviss í…
Besta sætið28. sept - Lélegur landsleikur, Írar öflugir og City í brasi
Slakur landsleikur Íslands og havarí í kringum Írland, Ísrael og Manchester City bar hæst í Besta sætinu þennan mánudaginn. Valur Páll Eiríksson, Bjarki…
Besta sætiðRúnar Már Sigurjónsson: Sorgin að hætta, flakk um Austur-Evrópu, EM-gleðin og HM höggið
Sauðkrækingurinn Rúnar Már Sigurjónsson hefur átt viðburðarríkan fótboltaferil sem tekur senn enda. Ferillinn dró hann víða um heim og hann kunni hvað best við…
Besta sætið25.sept - Ekkert elsku mamma lengur
Besta sætið var í landsliðsgír í dag enda spennandi helgi framundan fyrir íslenska karlalandsliðið sem hefur leik í Þjóðadeild UEFA á heimavelli á morgun…
Besta sætið24. sept - Loksins bolti á innipúkadegi
Það verður loksins hægt að horfa aftur á fótbolta á skjánum í kvöld og það á fyrsta haustlægðardegi ársins. Andri Broddason átti sérlega erfitt með…
Besta sætið23. sept - Rómantískur Arnar mun alltaf tryggja Aroni met
Ákvörðun Arons Einars Gunnarssonar um að hætta í íslenska landsliðinu, varnarvandræðin sem landsliðsþjálfarinn virðist ekki vilja horfast í augu við og komandi…
Besta sætið22. sept - Erfið og leiðinleg staða fyrir Heimi að vera í
Pólitíkin og alþjóðamálin náðu að teygja anga sína í Besta sætið í dag. Ísraelar eru ósáttir með Heimi Hallgrímsson og pressa á Írlandi að landsliðið sniðgangi…
Besta sætið21. sept - Slagsmál í Vesturbæ og erfið helgi Bjarka
Valur Páll Eiríksson, Aron Guðmundsson og Bjarki Sigurðsson gerðu upp risastóra íþróttahelgi sem er að baki. Rígur er að myndast í Bakgarðshlaupum, Þróttur…
Besta sætið18. sept - Bikarar í boði og hvað gerir Steindi í Bakgarðshlaupinu?
Rosaleg helgi í sportinu og nóg að fara yfir. Lengjudeildarúrslit, Víkingur getur orðið meistari í Bestu karla, Bakgarðshlaup með Steinda og enski boltinn.
Besta sætið17. sept - Man. Utd aftur í ruglinu og léleg mæting á Laugardalsvöll
Það er enn og aftur krísa hjá Man. Utd. Kunnuglegt stef síðustu ára þrátt fyrir bjartsýni í sumar. Svo ræðir Besta sætið af hverju Íslendingar virðast ekki…
Besta sætiðAlfreð Finnbogason: Úr auga stormsins í ævintýri Freys með Rosenborg
Á rúmu hálfu ári hefur Alfreð Finnbogason barist um í þeytivindu fótboltans sem yfirmaður knattspyrnumála hjá norska stórliðinu Rosenborg. Félagið hefur gengið…
Besta sætið16. sept - Kjartan Atli ræðir endurkomu sína á Álftanesið og Bestu deildina
Kjartan Atli Kjartansson er gestur dagsins í Besta sætinu en þar fer hann yfir ástæður þess af hverju hann sé orðinn aðstoðarþjálfari Álftaness. Liðsins sem…
Besta sætið15. sept. - Víkingar vilja fagna í Vesturbænum
Víkingar eru með níu putta á Íslandsbikarnum og Blikar mæta í Úlfarsárdalinn í kvöld. Hugsanlega að glíma við bikarþynnku. Óli Óli er meiddur hjá Grindavík sem…
Besta sætiðDagný Brynjars: Þriggja barna fótboltakona og sendiherra West Ham
Dagný Brynjarsdóttir er byrjuð að spila fótbolta á ný, fimm mánuðum eftir að hafa fætt sinn þriðja son. Hún er orðin 35 ára og viðurkennir að hún sé óviss um…
Besta sætið11. sept - Bikarhelgi og baráttan um Manchester
Það er pressa á Blikum í úrslitaleik kvöldsins og það kemur nýtt nafn á kvennabikarinn á morgun. Besta deildin heldur áfram eftir skiptingu og baráttan í neðri…
Besta sætið10. sept - Getur einhver stöðvað Barcelona?
Yfirreið yfir Meistaradeildina þar sem Barcelona og PSG líta hrikalega vel út. Man. Utd stígur aftur á stóra sviðið í kvöld. ÍBV fær Kana í handboltanum og…
Besta sætið9. sept - Er Mourinho enn nógu góður?
Jose Mourinho er mættur með látum í Meistaradeildina á nýjan leik. Liverpool á risaleik í Meistaradeildinni í kvöld á meðan Arsenal fer til Ítalíu. Umspilið í…
Besta sætið8. sept - Meistaradeildin fer loksins í gang
Það er hátíðisdagur því Meistaradeild Evrópu snýr aftur í kvöld. Við hitum vel upp fyrir kvöldið þar sem Jose Mourinho snýr aftur með Real Madrid í keppnina og…
Besta sætið7. sept - Arsenal með langbesta liðið
Arsenal sýndi mátt sinn og megin í stórleik ensku úrvalsdeildarinnar um helgina. Svo gerum við upp Bestu karla en Víkingar eru með pálmann í höndunum og…
Besta sætið4. sept - Risahelgi í boltanum
Lokaumferð deildarkeppni Bestu karla, lífsbaráttulaugardagur í Lengjunni og enski boltinn. Það þarf ekki að standa upp úr sófanum um helgina.
Besta sætið3. sept - Handboltinn rúllar af stað í kvöld
Olís-deild karla hefst í kvöld með tveimur leikjum. Haukum og Val er spáð toppsætunum. Stjarnan heldur áfram að spila í Miðgarði og svo rennum við yfir bestu…
Besta sætið2. sept - Uppgjör á stórleik KR og Víkings
Risaleikur KR og Víkings í gær er eðlilega í brennidepli í þætti dagsins. Rúmlega 4.000 manns mættu á leikinn sem hófst klukkan 17.30 á þriðjudegi. Víkingur er…
Besta sætið1. september - Leikur ársins á Meistaravöllum
Það er allt á suðupunkti fyrir stórleik KR og Víkings í Bestu deild karla. Skemmdarverk unnin í skjóli nætur hafa kynt bálið enn frekar. Besta sætið hitar vel…
Besta sætið28. ágúst - Man. City verður meistari
Það er lítil bjartsýni fyrir landsleik kvöldsins í körfunni enda við ofurefli að etja. Handboltinn fer að rúlla af stað og Val er hvorki spáð titli í karla- né…
Besta sætið27. ágúst - Eini stuðningsmaður Zirkzee fundinn
UEFA ætlar að draga Infantino fyrir dómstóla, Víkingar spila um hálfan milljarð, Freyr blómstrar í Noregi og maður sem elskar knattspyrnumanninn Joshua Zirkzee…
Besta sætið26. ágúst - Mun Arsenal valta yfir deildina?
Íþróttafréttamenn lélegir í golfi, sprungið dekk í Þakgili og umræða um enska boltann og meinta yfirburði Arsenal.
Besta sætiðDavid Winnie: Sigrar með KR, fótbolti Óskars Hrafns og íþróttalögfræðin
Skotinn David Winnie var hér á Íslandi um fjögurra ára skeið frá 1998 til 2001 er hann lék með og þjálfaði svo karlalið KR í fótbolta. Hann var valinn besti…
Besta sætiðBjörn Berg: Áhyggjur af framtíð fjármála fótboltans
Endurskoðunar- og ráðgjafafyrirtækið Deloitte gaf út skýrslu í sumar þar sem áhyggjum er lýst yfir vegna heilbrigðis fjármála innan fótboltans til lengri tíma…
Besta sætið29. júlí - Infantino að gera allt vitlaust
Gianni Infantino, forseti FIFA, vill hleypa fjárfestum að kjötkötlum FIFA og það ætlar hann að gera með því að bjóða knattspyrnusamböndum gríðarmikla peninga…
Besta sætið24. júlí - Allt á uppleið hjá Val
Valsmenn unnu loksins leik, og það gegn sterku liði í Sambandsdeildinni, Stjarnan vann líka í Evrópu en Vestri ekki. Undanúrslit eru fram undan í Mjólkurbikar…
Besta sætið23. júlí - Meiddir Valsmenn, ævintýri Vestra og svar Stjörnunnar
Vestramenn eru mættir til Lettlands, Valsmenn taka á móti Blikabönum frá Bosníu og Stjarnan tekur nýflengd á móti liði frá Finnlandi í Evrópueinvígum dagsins…
Besta sætið22. júlí - EuroVikes, vonlaus Valur og Arnar í stuði
Víkingar vinna enn heimaleiki sína í Evrópukeppni þökk sé Nikolaj Hansen. Valskonur eru afskaplega slakar og markasúpa var í Bestu deild kvenna. Svo náði…
Besta sætið21. júlí - Besta uppgjörið
Henry Birgir og Valur Páll gera upp síðustu umferðina í Bestu deild karla.
Besta sætið20. júlí - HM uppgjör
Frábæru HM lauk í gær með sigri Spánverja á slökum og grófum Argentínumönnum. Henry Birgir og Valur Páll gera upp mótið í þætti dagsins.
Besta sætið17. júlí - Barnaleg mistök, markasjúkir FH-ingar og risastór helgi
Nóg var að ræða í Besta sætinu þennan föstudaginn. Evrópuleikir, Bestu deildirnar, Opna breska, Formúla 1 og fleira til. Stjarnan og Vestri eiga bæði annað…
Besta sætið16. júlí - Tuchel á skilið launalækkun og gleðilegan gluggadag
Áhuginn á Opna breska meistaramótinu í golfi stóreykst eftir tap Englands gegn Argentínu á HM. Nóg er að gera í pappírsvinnu við að ganga frá öllum…
Besta sætið15. júlí - Yamal sá svalasti og lausnin við Messi fundin
Lamine Yamal er líklega svalasti fótboltamaður sögunnar og einfalda lausn má finna við vandræðunum sem Lionel Messi veldur. Daníel Hafsteinsson er samt helsta…
Besta sætið13. júlí - Valsmenn í vandræðum og óvænt félagaskipti
Besta sætið hafði mörg mörk að ræða í dag, nánar tiltekið 21 mark í 4 leikjum Bestu deildar karla í gær. Vonandi sést eitthvað svipað á nýja Kópavogsvellinum í…
Besta sætið10. júlí - Sýður á Sigga Helga
Víða var komið við í Besta sætinu þennan ágæta föstudag. Stefán Árni dreif sig beint í sumarfrí eftir þátt dagsins. Þeir Valur Páll Eiríksson, Andri Broddason…
Besta sætið9. júlí - Gleðileg jól og langt hlé á enda
Jólin í ár verða fullkomin fyrir íþróttaáhugafólk eins og rætt var um í Besta sætinu í dag. Stjarnan og Vestri eiga ansi ólík verk fyrir höndum í Evrópukeppnum…
Besta sætið8. júlí - Hættulegur völlur í Fossvogi og afleiðingar Balogun-málsins
Leikmenn Víkings eru látnir spila á „ónýtum og hættulegum“ gervigrasvelli en mega vera stoltir af frábærum 1-0 sigri gegn ungversku meisturunum. Átta liða…
Besta sætið7. júlí - Megas á bar í Boston og Nablinn hress í Eyjum
Það var af nægu að taka í Besta sætinu eftir líflegan dag á HM í fótbolta, þar sem Cristiano Ronaldo stimplaði sig út og Belgar rúlluðu yfir Bandaríkin, og að…
Besta sætið6. júlí - Fáránleg ákvörðun FIFA góð fyrir mótið
Í Besta sætinu sögðu menn sína skoðun á fordæmalausri afléttingu leikbanns Folarin Balogun sem fær að spila fyrir Bandaríkin gegn Belgíu á HM í nótt. Farið var…
Besta sætið3. júlí - Martröð markvarðar og VAR-veisla í Toronto
Tveir góðir gestir settust í Besta sætið á þessum fína föstudegi. Kolbeinn Tumi Daðason, ritstjóri fréttastofu Sýnar, og Magnús Jochum Pálsson…
Besta sætið2. júlí - Þýskt þrot
Farið var um víðan völl í Besta sætinu í dag. Birgir Olgeirsson, fréttamaður á Sýn, var sérstakur gestur þar sem rætt var um HM, England, Þýskaland, NBA, Bestu…
Besta sætið1. júlí - Rómans Stefáns Árna og Deschamps
HM var mikið til umræðu í Besta sætinu í dag. Besta deildin kom við sögu sem og stór tíðindi úr Bónus deildinni í körfubolta. Valur Páll Eiríksson, Stefán Árni…
Besta sætið29. júní: Þjálfaraskipti hjá Val og mikilvægir leikir hjá landsliðinu
Í Besta sætinu í dag er farið yfir stórtíðindin af Hlíðarenda. Hermann Hreiðarsson hefur verið látinn fara sem þjálfari karlaliðs Vals í fótbolta og nú þegar…
Besta sætið26. júní: Brakandi fersk tíðindi og er rígurinn dauður?
Það var við hæfi að opna þáttinn á slagara með Sálinni, Stebbi Hilmars sextugur og gír í mönnum. Nóg að ræða í dag. Er rígurinn milli Blika og Víkinga dauður?…
Besta sætið24. júní: Vinstri eða hægri? Ronaldo eða Messi?
Besta sætið mætir alltaf funheitt aftur. Sumarfílingur í hópnum og nóg að ræða. Toppbaráttan í Bestu deild kvenna í fótbolta veldur ekki vandræðum. Það voru…
Besta sætið22. júní: Besta lið sögunnar?
Víkingar virðast óstöðvandi í Bestu deild karla og KR-ingar þurfa að vinna Skagamenn í kvöld til að halda lífi í titilbaráttunni. FH, Þór, KA og Stjarnan eru…